Gervigreind fyrir lítil fyrirtæki, á íslensku.
Lítil fyrirtæki þurfa ekki að læra á gervigreind til að nota hana. Eva Innsýn er stafrænn starfsmaður sem vinnur í kerfunum sem þú notar nú þegar: tölvupóstinum, Facebook, Instagram, Google og dagatalinu. Hún skrifar á íslensku, í þínum tón, og bíður samþykkis þíns áður en nokkuð fer út.
Hvað getur gervigreind gert fyrir lítið fyrirtæki?
Svarað viðskiptavinum
Eva les það sem berst í tölvupósti, á Messenger og Instagram og semur drög að svari við hverju þeirra. Þú samþykkir með einum smelli.
Skrifað og birt efni
Þú skrifar færslu einu sinni og Eva birtir hana á Facebook, Instagram, LinkedIn og Google. Hún getur líka lagt til færslur fyrir vikuna.
Sett upp auglýsingar
Eva býr til Meta-herferðir frá grunni og leggur þær fyrir þig í drögum. Hún segir þér á mannamáli hvað virkar og hvað mætti bæta.
Haldið utan um daginn
Um sexleytið á hverjum morgni færðu stutta stöðu: hvað gerðist, hvað bíður og ein tillaga um næsta skref. Fundarbeiðnir úr póstinum fara á dagatalið þegar þú staðfestir.
Lagað vefinn
Eva skannar vefsíðuna, gefur henni einkunn og lagar það sem má laga svo hún finnist betur á Google.
Er óhætt að láta gervigreind svara viðskiptavinum?
Hér skiptir mestu að þú ræður. Allt sem Eva undirbýr bíður samþykkis þíns: þú sérð textann, af hverju hún leggur hann til, og velur um að samþykkja, breyta eða hafna.
Breytir þú textanum lærir hún af því. Þegar þú treystir henni betur getur þú gefið henni meira svigrúm, en það er alltaf þín ákvörðun.
Hvað kostar það?
Ein áskrift að öllu sem Eva gerir, 4.400 kr. á mánuði án virðisaukaskatts (5.456 kr. með virðisaukaskatti). Hver nýskráning byrjar á prufu án greiðslukorts.
Það sem fólk spyr um.
Þarf ég að kunna á gervigreind?
Nei. Þú tengir kerfin þín einu sinni og Eva vinnur í þeim fyrir þig.
Skrifar Eva á íslensku?
Já. Hún skrifar á íslensku og lærir tóninn þinn af því sem þú lagfærir hjá henni.
Hver stendur á bak við Evu?
Eva Innsýn er íslensk og gerð af 12345 ehf. Stofnandi er Vigdís Guðmundsdóttir.
Fer eitthvað út án þess að ég viti?
Nei. Á fyrsta stigi bíður allt samþykkis þíns.
Prófaðu Evu á einu verkefni.
Stofnaðu aðgang, gefðu Evu vefsíðuna þína og fáðu henni eitt verk. Það tekur nokkrar mínútur og þarf ekkert greiðslukort.
