Þjónustuleiðir

Öll Eva, ein áskrift.

Ein áskrift að öllu sem Eva gerir, 4.400 kr. á mánuði án virðisaukaskatts, sem þú stjórnar sjálf í mælaborðinu. Hver nýskráning byrjar á prufu án greiðslukorts. Greitt er í gegnum Kling, með kröfu í heimabanka eða korti.

Áskrift

Ein áskrift.

Áskrift

Innsýn

4.400 kr.* /mán.

5.456 kr. með virðisaukaskatti

Allt sem Eva gerir, og Hjálparhönd Evu með.

  • Tölvupóstur, Messenger og Instagram á einum stað, með svarsdrögum í þínum tón
  • Eva lærir tóninn þinn betur með hverju svari
  • Dagatalið: fundarbeiðnir úr póstinum staðfestar með einum smelli
  • Samfélagsmiðlar: færslur birtar á Facebook, Instagram, LinkedIn og Google
  • Vefurinn og leitarvélabestun, bókhald og skattar, morgunsamantekt
  • Hjálparhönd Evu: hún vinnur verkin í vafranum þínum
  • Ekkert fer út án þess að þú segir já
Prófa Evu

Hver nýskráning byrjar á prufu, án greiðslukorts.

* Verð án virðisaukaskatts; hann bætist við í kaupferlinu.

Inneign

Fyrir dýpri vinnu.

Viltu láta Evu vinna stærri verk en mánaðarnotkun áskriftarinnar nær yfir? Þá kaupir þú inneign, einu sinni, þegar þér hentar. Hún fyrnist aldrei.

5.000 kr.*

INNSÝN · inneign sem fyrnist aldrei.

10.000 kr.*

YFIRSÝN · inneign sem fyrnist aldrei.

15.000 kr.*

UMSJÁ · inneign sem fyrnist aldrei.

Inneign er keypt inni í mælaborðinu undir Inneign og fylgir áskrift. * Verð án virðisaukaskatts; hann bætist við í kaupferlinu.

Spurt og svarað

Það sem fólk spyr um.

Hvað er munurinn á áskrift og inneign?

Áskriftin er aðgangurinn að Evu: allt sem hún gerir, ásamt Hjálparhönd Evu, og henni fylgir mánaðarleg notkun. Inneign er fyrir þau sem vilja láta hana vinna stærri verk. Hún er keypt einu sinni og fyrnist aldrei.

Get ég byrjað smátt?

Já. Hver nýskráning byrjar á prufu, án greiðslukorts, svo þú sérð hvað Eva getur áður en þú velur áskriftina.

Fer eitthvað út án þess að ég viti af því?

Nei. Á fyrsta stigi bíður allt samþykkis þíns. Þú getur síðar gefið Evu meira svigrúm, til dæmis að birta þínar eigin færslur beint eða svara einföldum fyrirspurnum sjálf, og þú sérð alltaf eftir á hverju hún svaraði.

Hvernig borga ég?

Í gegnum Kling. Þú velur kröfu í heimabanka eða kort þegar þú velur áskriftina í mælaborðinu, og hún endurnýjast mánaðarlega. Verð eru án virðisaukaskatts; hann bætist við í kaupferlinu.

Þarf ég að kunna á kerfin sem Eva vinnur í?

Nei. Þú tengir kerfin einu sinni, til dæmis Facebook, Instagram, Google og tölvupóstinn, og Eva vinnur í þeim fyrir þig. Vanti tengingu við kerfi sem þú notar, segðu okkur frá því.

Viltu ráða Evu?

Það tekur nokkrar mínútur að stofna aðgang. Eva les sig til um reksturinn þinn og þú fær henni fyrsta verkið.